Tölfræði
77
Ára reynsla
300
Starfsmenn
302.820 kg CO2
Kolefnissparnaður vegna rafbíla frá Maí 2023
Jarðvinna
Gott undirlag er grunnurinn að sterkara mannvirki. Í námuvinnslu Steypustöðvarinnar finnur þú fyllingarefni og burðarlag sem stenst ströngustu kröfur.
SkoðaBrúarbitar
Engu máli skiptir hver traðkar á brúnni þinni. Sterkari brýr af öllum stærðum og gerðum, allt frá einföldum göngubrúm yfir í langar og breiðar brýr sem ætlaðar eru undir mikla og þunga umferð. Forsteyptir brúarbitar Steypustöðvarinnar gera það að verkum að byggingahraði á staðnum verður meiri sem getur komið sér vel á stöðum þar sem erfitt er að fá vinnuafl.
SkoðaInnviðalausnir
Undirstöðuatriði sem hægt er að treysta. Sterkari steypa og forsteyptar einingar hannaðar fyrir undirstöður við vatn og sjó.
SkoðaÁrekstravörn
Ferðin verður örugglega góð. DELTABLOC er eina einingakerfið í steyptum vegriðum á Íslandi sem er viðurkennt samkvæmt ÍST EN 1317. Kerfið er prófað með bifreiðum við raunverulegar aðstæður. Það dregur úr hraða þeirra og ökumenn og farþegar slasast síður.
SkoðaUndirstöður
Rekstaurarnir okkar reka inn nefið þar sem þeirra er þörf. Forsteyptir rekstaurar eru til að mynda notaðir undir brýr og önnur mannvirki sem þurfa sérstaklega mikla grundun.
SkoðaBrúargólf
Steypa sem brúar bilið. Veðrunarþolin og endingargóð steypa fyrir brýr sem búa við íslenskar aðstæður. Sterkari lausnir sem þurfa minna viðhald.
SkoðaÞakbitar
Þak yfir höfuðið. Forsteyptir burðarbitar fyrir bæði holplötur og rifjaplötur. Henta vel í allar stærðir bygginga með mikla haflengd, svo sem vöruhús, verkstæði, bílageymslur o.fl.
SkoðaForsteyptar loftplötur
Sterkari loftplötur sem henta við margvíslegar aðstæður. Forsteyptar loftplötur fyrir stór opin rými, milliplötur, gólf á milli hæða, eða stærri byggingar þar sem haflengd er mikil. Skilvirk lausn sem eykur byggingahraða til muna.
SkoðaIðnaðargólf
Gólfið er grunnurinn að vel heppnuðum rekstri. Steypustöðin hefur allt sem þarf í iðnaðargólfið þitt, hvort sem þú ert í matvælaiðnaði, verslun og þjónustu, fiskvinnslu, landbúnaði eða öðru.
Garðurinn
Gerðu garðinn frægan, sterkari og viðhaldsfrían svo þú getir slappað af notið lífsins. Hjá Steypustöðinni færðu mikið úrval nútíma garðlausna sem hafa sannað sig við íslenskar aðstæður í áraraðir.
SkoðaForsteyptar loftplötur
Okkar loft eru ekki úr lausu lofti gripin. Hvort sem loftin eru stór eða smá eru forsteyptar loftplötur Steypustöðvarinnar besti valkosturinn.
SkoðaUndirstöður
Undirstöðuatriði sem hægt er að treysta á. Endingargóðar og sérhannaðar lausnir fyrir undirstöður mannvirkja með mikinn þrýstistyrk sem standast meira álag og uppfylla sérkröfur fyrir verkið.
SkoðaÁra reynsla
Starfsmenn
Kolefnissparnaður vegna rafbíla frá Maí 2023
1. október 2024
Steypa getur verið viðkvæm fyrir sprungumyndun á fyrstu klukkustundunum eftir niðurlögn ef að aðstæður eru þannig að hún þornar of hratt. Veðuraðstæður á verkstað geta valdið því að uppgufun verður of mikil af yfirborði steypunnar sem leiðir til togspennu í yfirborði og aukinni hættu á sprungumyndun.
23. september 2024
Ný samfélagsskýrsla Steypustöðvarinnar fyrir árið 2023 er komin út. Skýrslan endurspeglar þær miklu framfarir og áskoranir sem félagið hefur staðið frammi fyrir á árinu, með áherslu á sjálfbærni og nýsköpun. Steypustöðin hefur haldið áfram að fjárfesta í umhverfisvænni lausnum, rafvæðingu, og nýjum aðgerðum til að draga úr kolefnislosun.
28. júní 2024
Steypustöðin fékk nýlega afhenta þrjá nýja steypuflutningabíla af tegundinni P9G iOntron Sany/Putzmeister sem bæst hafa í flota þriggja annarra sams konar steypubíla sem afhentir voru á síðasta ári. Þá verða alls tíu stór vinnutæki komin í þjónustu Steypustöðvarinnar sem öll eru rafknúin því á síðasta ári tók Steypustöðin einnig í notkun rafknúinn dráttarbíl (trailer) og tengiltvinndælubíl (hybrid) sem dælir steypu á verkstað á 100% rafmagni.
12. júní 2024
Við erum spennt að kynna nýja línu af stórum blómapottum sem setja svip sinn á heimilið og/eða í garðinn. Blómapottarnir eru hannaðir til að vera bæði fallegir og praktískir, þar sem þeir eru frostþolnir og hentugir til notkunar utandyra.
29. febrúar 2024
Nú stendur yfir þjónusturannsókn sem rannsóknarfyrirtækið Prósent sér um fyrir okkar hönd.
Markmið rannsóknarinnar er að kanna þjónustu okkar og viðhorf þitt til Steypustöðvarinnar.
3. janúar 2024
Steypustöðin var á dögunum valin á lista Bláma yfir Topp 10 orkuskiptaverkefni 2023. Þetta er ekki aðeins viðurkenning á okkar framlagi, heldur einnig staðfesting á okkar áherslu á sterkari og sjálfbærari framtíð.
29. nóvember 2023
Steypustöðin hefur ráðið tvo stjórnendur sem báðir koma úr röðum fyrirtækisins. Sigríður Björnsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri rekstrar og mannauðs, og Rögnvaldur Andri Halldórsson tekur við stöðu rekstrarstjóra náma Steypustöðvarinnar.
22. nóvember 2023
Á innan við ári hefur Steypustöðin fjárfest í og tekið í notkun fimm nýja og rafknúna vörubíla sem saman standa af þremur steypubílum, steypudælubíl og dráttarbíl. Tveir steypubílanna bættust fyrir fáeinum vikum, en fyrirtækið vinnur hratt að orkuskiptum í flotanum.
13. september 2023
Steypustöðin hefur ráðið Jónínu Þóru Einarsdóttur í starf leiðtoga sjálfbærni- öryggis og gæðamála hjá félaginu. Jónína hefur skapað sér sess í íslenskum byggingariðnaði og er með réttindi sem BREEAM matsmaður sem stuðlar að sjálfbærum framkvæmdum í byggingariðnaði á Íslandi.
30. júní 2023
Okkur er annt um umhverfið og samfélagið okkar – við viljum því á gagnsæjan hátt sýna það í verki hvað við erum að gera. Nú er önnur samfélagsskýrsla Steypustöðvarinnar komin út.