Landslagsráðgjöfin er hafin – Bókaðu tíma fyrir draumagarðinn

Nú geta viðskiptavinir Steypustöðvarinnar bókað landslagsráðgjöf hjá einum reyndasta landslagsarkitekt landsins, Birni Jóhannssyni. Á 45 mínútum færðu þrívíða útlitsteikningu, málsetta grunnmynd, efnislista og verðtilboð fyrir innkeyrsluna eða garðinn – allt á einum stað.

Fyrir hverja er ráðgjöfin?

Landslagsráðgjöfin er hugsuð fyrir þá sem vilja teikna innkeyrslu eða garð með aðstoð fagmanns. Hún hentar svæðum við húsið sem eru að hámarki 200 fm að stærð og einskorðast við hellur, hleðsluveggi og aðrar garðlausnir Steypustöðvarinnar.

Hver er Björn?

Björn Jóhannsson landslagsarkitekt hefur hannað garða fyrir Íslendinga í yfir 30 ár, þar á meðal verðlaunagarða hjá sveitarfélögum. Hann starfaði um tíma í Svíþjóð og kemur með skandinavíska strauma inn í íslenska garða. Björn rekur hönnunarstofuna Urban Beat sem þjónustar bæði einstaklinga, sumarhúsaeigendur, fyrirtæki og sveitarfélög.

Hvað færðu út úr 45 mínútum?

Á meðan samtalið stendur yfir vinnur Björn þrívíða mynd af svæðinu þínu þar sem hellur og hleðslur eru mátaðar inn. Eftir tímann færðu sent fjölbreytt PDF-skjal innan 7 virkra daga sem inniheldur:
  • Málsetta grunnmynd fyrir verktakann
  • Þrívíðar útlitsteikningar
  • Efnislista með magntölum
  • Verðtilboð

Verð

Ráðgjöfin kostar 22.900 kr. og gengur sú upphæð upp í efniskaup á hellum og öðrum vörum frá Steypustöðinni.

Hvar og hvenær?

Ráðgjöfin fer fram á söluskrifstofu Steypustöðvarinnar að Malarhöfða 10 á fimmtudögum og föstudögum milli kl. 9–15.

Klár að teikna garðinn?