Mynstursteypa

Prev
Next

Mynstursteypa er tilvalin fyrir fagurkera sem vilja hafa umhverfi heimilisins smekklegt.

Hvað er mynstursteypa?

Mynstursteypa er aðferð til að forma yfirborð steinsteypu. Hægt er að velja um margar gerðir af mynstrum og litasamsetningar sem gefa fallega áferð. Mynstursteypa hefur verið notuð með góðum árangri í fjölda ára á fleti og svæði sem mikið mæðir á, svo sem í bílastæði, innkeyrslur, göngustíga og garða.

Hverjir eru helstu kostir mynstursteypu?

Mynstursteypa býður upp á ýmsa skemmtilega og áhugaverða kosti í mynstrum og litum. Það er auðvelt að þrífa yfirborð mynstursteypu, það er slitþolið og gróður, olía, feiti og önnur óhreinindi festast ekki við yfirborðið.

Er mynstursteypa æskileg innandyra?

Já, heldur betur. Fallegt útlit og slitsterkir fletir gera mynstursteypu ákjósanlega fyrir heimili, sólskála, svalir, bílageymslur, atvinnuhúsnæði og verslanir.

Hvaða mynstur og liti er boðið upp á?

Mikið úrval smekklegra mynstra og lita er í boði. Hægt er að blanda þeim saman á skemmtilegan hátt eða útfæra persónulega lausn fyrir þig. Einnig er hægt að ná fram áferð náttúrusteins í ýmsum litaafbrigðum eða halda sig við gráa litinn eins og á venjulegum steypuhellum.

Hvað með viðhald á mynstursteypu og hellum?

Við bjóðum upp á gróðureyði, þvottaefni og yfirborðsmeðhöndlunarefni til að viðhalda fallegu útliti á mynstursteypu og hellum. Viðgerðarefni fyrir mynstursteypu Ef mynstursteypa þarfnast viðgerðar bjóðum við upp á litað viðgerðarefni frá PICS. Það er til dæmis tilvalið að nota ef brotnar upp úr steypunni.

Viltu vita meira?

    Downloads and Documents

    Mynstursteypa og viðhaldsefni ↓

    • Upplýsingar

    • Fyrirspurnir

      Next

      Viltu vita meira?

      • Gagnablöð

        Next

        Downloads and Documents

        Mynstursteypa og viðhaldsefni ↓

      Vörunúmer: Mynstursteypa

      Hafðu samband

      Mynstursteypa