Það var húsfylli, líflegar umræður og rafmögnuð stemning þegar fræðsluþing Steypustöðvarinnar, FS26, fór fram nýverið. Við viljum þakka öllum þeim fjölmörgu gestum sem gerðu daginn ógleymanlegan með nærveru sinni.
Markmið FS26 var að kafa dýpra í hugtakið gæði – ekki bara sem tæknilega forskrift, heldur sem undirstöðu fyrir heilbrigðara samfélag og betra líf. Hér að neðan má sjá stutta samantekt á þeim mögnuðu erindum sem flutt voru á þinginu.

Malin Meyer, forstjóri Danielsen Architecture
Malin opnaði þingið með erindi sem hreyfði við mörgum. Hún minnti okkur á að við eyðum allt að 90% af tíma okkar innandyra. Að hennar mati eiga byggingar ekki að vera óvirkir gámar, heldur „bakhjarlar“ sem styðja við heilsu okkar, draga úr streitu og bæta svefngæði í gegnum snjalla lýsingu og hljóðvist. Hún sýndi hvernig arkitektúr getur raunverulega „gefið til baka“ til íbúa og samfélagsins.

Jónas Atli Gunnarsson, Yfirhagfræðingur HMS
Jónas mætti með „hörðu gögnin“ og gerði það spennandi. Hann varpaði ljósi á hvers vegna nýbyggingar seljast hægar en notaðar íbúðir í dag. Svarið liggur oft í gapi á milli hönnunar og þarfa kaupenda, sérstaklega hjá ört vaxandi hópi 65 ára og eldri sem leitar eftir gæðum á borð við svalir og bílastæði. Jónas kynnti einnig „Lasagna-módelið“ þar sem gögn munu hjálpa okkur að skipuleggja betri hverfi til framtíðar.

Hrólfur Cela, arkitekt hjá Basalt Arkitektum
Hrólfur sýndi okkur listrænu hliðina á steypunni. Hann deildi sögunni af hnúfubaknum í raunstærð sem hann „fól“ í gólfi eigin heimilis og hvernig steypa getur rammað inn íslenska náttúru á ljóðrænan hátt. Hvort sem það eru jarðböð við Mývatn eða sumarhús sem hneigja sig fyrir þunga fjallsins, þá er steypan ílát fyrir ímyndunaraflið þegar hugarheimar og efnisheimar mætast.

Sigrún Melax - Gæðastjóri Jáverks
Sigrún jarðtengdi umræðuna með praktískum dæmum af byggingarsvæðinu. Hún ræddi um mikilvægi þess að vanda til verka strax í hönnunar fasa til að koma í veg fyrir 60% allra byggingargalla. Sigrún mælti eindregið með vélrænum loftskiptum til að bæta inniloft og koma í veg fyrir rakavandamál, og minnti okkur á að gæði eru sjálfbærasta fjárfestingin sem völ er á.

Johannes Bister frá þýska fyrirtækinu Schlamann
Johannes kynnti milliveggjasteininn Lemga. Hann líkti framleiðslunni við bakstur á kanilsnúðum og sýndi hvernig þessi „verðmæta loftblanda“ getur stýrt rakastigi innandyra og boðið upp á brunavarnir í sérflokki. Steinninn dregur í sig kolefni yfir líftíma sinn, sem gerir hann að einu sjálfbærasta byggingarefninu á markaðnum í dag.

Haraldur Ketill Tæknilegur ráðgjafi hjá Steypustöðinni
Haraldur Ketill, lokaði þinginu með því að kafa í tæknilegar rakavarnir. Hann kynnti „tanking“ hugmyndafræðina fyrir neðanjarðarvirki – hvernig við búum til „öfugar sundlaugar“ þar sem vatnið er haldið algjörlega úti með snjöllum dúkum og vatnsþéttri steypu. Hans skilaboð voru skýr: Það skiptir ekki máli hversu dýr lausnin er, ef hún er ekki rétt útfærð frá byrjun.