Fræðsluþing Steypustöðvarinnar 2026 – Skráning

Steypustöðin heldur í annað sinn Fræðsluþing Steypustöðvarinnar, FS26 þann 6. febrúar næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík. Sjónum verður beint að verðmætasköpun og heilnæmi í mannvirkjagerð undir yfirskriftinni: „Byggjum til framtíðar – Verðmæti og vellíðan í hverjum fermetra.“

Eftir vel heppnað þing á síðasta ári, þar sem færri komust að en vildu, höldum við áfram að miðla þekkingu til fagaðila í byggingariðnaði. Markmiðið með Fræðsluþinginu er að leiða saman sérfræðinga og ræða hvernig við getum skapað mannvirki sem bæði endast betur og styðja við vellíðan þeirra sem þar dvelja.

Alþjóðlegir og innlendir sérfræðingar
Aðalfyrirlesari þingsins í ár er Malin Meyer, forstjóri Danielsen Architecture í Danmörku. Malin er einn fremsti sérfræðingur Norðurlanda þegar kemur að því að samþætta framsækna hönnun, sjálfbærni og viðskiptalegan ávinning.

Auk hennar mun landslið íslenskra sérfræðinga fjalla um gæði á húsnæðismarkaði, framtíðarlausnir í steypu og hvernig við tryggjum heilnæma innivist með sameiginlegri ábyrgð allrar virðiskeðjunnar.

Dagskrá og skráning
Þingið fer fram í Háteigssal á Grand Hótel kl. 09:00–13:00. Húsið opnar kl. 08:30 þar sem boðið verður upp á léttar veitingar, og dagskránni lýkur með sameiginlegum hádegisverði.

Vegna mikillar aðsóknar á síðasta ári hvetjum við áhugasama til að skrá sig tímanlega.

Fyrirlesarar á FS26