Fræðsluþing
Steypustöðvarinnar
2026

Vertu velkomin á FS26

Byggjum til framtíðar - Verðmæti og vellíðan í hverjum fermetra

Fræðsluþing Steypustöðvarinnar verður haldið í annað sinn þann 6. febrúar 2026. Yfirskriftin í ár er Byggjum til framtíðar - Verðmæti og vellíðan í hverjum fermetra. Landslið sérfræðinga fræðir okkur um hvernig hægt er að skapa verðmæti í hverjum fermetra með tilliti til endingar og heilnæmi bygginga.
 

Fræðsluþingið verður haldið á Grand Hótel í Háteigssalnum á 4. hæð frá kl. 09.00 – 13:00. Húsið opnar kl. 08:30 og verður boðið upp á kaffi og léttar veitingar, dagskráin endar síðan á hádegisverði.

Við hlökkum til að sjá þig á FS26 þar sem innblástur, þekking og sterkari tengsl verða í fyrirrúmi.

Buildings that give back

Malin Meyer er arkitekt sem er þekkt fyrir framsækna sýn á hvernig hönnun og manngildi mætast í stórum byggingarverkefnum. Malin er forystukona í dönskum arkítektúr og leiðir hönnun stórra verkefna þar sem nýsköpun og fagurfræði fara saman.  Hún hefur verið brautryðjandi í að skapa umhverfi sem hámarkar vellíðan og afköst.

Hún leggur áherslu á hvernig hönnun með fólk sem miðjupunkt hefur bein áhrif á nýtingu húsnæðis, líftímakostnað og aðlögunarhæfni til framtíðar. Í fyrirlestrinum hennar kemur fram hvernig vönduð hönnun nýtist sem viðskiptalegt tæki sem eykur skilvirkni í rekstri, lengir líftíma eigna og hámarkar arðsemi fjárfestinga fyrir eigendur, verktaka og samfélög.

  • Alþjóðlegur ráðgjafi:  Víðtæk reynsla af ráðgjöf fyrir byggingariðnaðinn á Norðurlöndum og þróun heilsueflandi rýma.

  • Talsmaður virðisaukandi hönnunar: Þekkt fyrir að sýna fram á hvernig arkitektúr og sjálfbærni mæta viðskiptalegum markmiðum

Mikilvægi gæða á húsnæðismarkaði

Jónas Atli er yfirhagfræðingur HMS. Í greiningu sinni á húsnæðismarkaðnum hefur Jónas bent á að húsnæðisuppbygging síðustu ára hafi ekki verið nægilega mikil til að mæta mannfjölgun og breyttri samsetningu þjóðar. Jónas Atli veitir innsýn í hvernig gæði bygginga breytast með samfélaginu og óskum kaupenda. Hann rýnir í húsnæðisuppbyggingu síðustu ára, kannanir um búsetuóskir og mannfjöldaspár til þess að áætla hvaða gæði kaupendur framtíðar vilja í sínum íbúðum.

Afsteypa hugmyndaflugsins

Hrólfur er þekktur fyrir að teygja mörk hönnunar og efnisnotkunar á Íslandi. Í erindi sínu fjallar hann um sköpunarkraftinn sem liggur í mótun steypunnar og hvernig hugmyndaflug arkitekta mætir tæknilegum möguleikum efnisins. Þetta er hvetjandi fyrirlestur um hvernig við getum búið til fallega og varanlega byggingarlist með réttri nálgun.

Heilnæm bygging - sameiginleg ábyrgð

Sigrún dregur fram mikilvægi þess að allir aðilar sem koma að byggingu mannvirkis tryggi heilnæmi bygginga. Hún leggur áherslu á að gæði séu ekki bara stimpill á blaði, heldur sameiginleg ábyrgð sem tryggir vellíðan íbúa til framtíðar og skili sér í raunverulegu efnahagslegu virði. Hér fáum við hagnýta sýn á það hvað verktakar leggja áherslu á í að skila af sér heilnæmum byggingum - byggt fyrir framtíðarkynslóðir.

Hlutverk steypustöðvarinnar og yfirskrift FS26

Jónína verður kynnir dagsins á FS26. Hún mun setja tóninn með því að tengja saman sjálfbærnimarkmið og raunverulegar aðgerðir í íslenskri mannvirkjagerð, og hvert hlutverk fyrirtækja eins og Steypustöðin er í umbreytingum á þörfum framtíðarinnar. 

Steypulausnir framtíðarinnar - grunnur að heilnæmri innivist

Haraldur kafar ofan í tæknilegar útfærslur á sterkari lausnum sem leggja grunninn að heilnæmri innivist. Hann útskýrir hvernig rétt val á lausnum hefur úrslitaáhrif á loftgæði og rakastjórnun í mannvirkjum, sem eru lykilþættir í að tryggja heilsu og vellíðan íbúa. Þetta er mikilvægt innlegg fyrir þá sem vilja vita hvaða tækninýjungar munu skilgreina íslenskan byggingarmarkað næstu árin og skilja betur hvernig það skilar sér í betra og endingarbetra húsnæði.

A glance into the future

Johannes veitir okkur sýn inn í framtíðarlausnir í léttsteypusteini (e. Aerated Concrete) sem eru að ryðja sér til rúms á alþjóðavísu. Hann fer yfir kosti þessara efna þegar kemur að einangrun og skilvirkni í byggingarferlinu. Hann fjallar sérstaklega um jákvæð þessara lausna á loftgæði innanhúss og hvernig efnið stuðlar að jöfnu og heilbrigðu rakastigi í byggingum. Erindið veitir dýrmæta innsýn í hvernig nútíma efnisval getur bætt lífsgæði fólks. Fyrir þá sem vilja kynnast næstu kynslóð byggingarefna er þetta erindi sem ekki má missa af.

Skráning á viðburð

ATH. Fullt er á viðburðinn – endilega skráið ykkur á biðlista og við höfum samband ef það losnar. Skrá á biðlista

Móttakandi:

"(nauðsynlegt)" indicates required fields

Nafn(nauðsynlegt)