Verk og Vit 2026 – Steypustöðin á sínum stað

Við hjá Steypustöðinni verðum að sjálfsögðu á meðal sýnenda á fag- og stórsýningunni Verk og Vit sem fer fram í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal dagana 19.–22. mars nk.

Við hvetjum samstarfsaðila, viðskiptavini og alla áhugamenn um vandaðar byggingarlausnir til að líta við hjá okkur á básnum. Þar verðum við með sérfræðinga til staðar að ræða verkefnin framundan og  sýna nýjungar í steypuiðnaði.

Sýningin er frábær vettvangur til að efla tengslin og sjá hvað er efst á baugi í íslenskum byggingariðnaði.

Hvar: Laugardalshöll
Hvenær: 19.–22. mars

Við hlökkum til að sjá ykkur!