Steypustöðin hlaut sýningarverðlaun Verk og Vit 2026

Steypustöðin stóð uppi sem sigurvegari þegar sýningarverðlaun Verk og Vit 2026 voru veitt við hátíðlega athöfn í Laugardalshöll um helgina. Þetta er mikil viðurkenning fyrir fyrirtækið en yfir 100 sýnendur tóku þátt í sýningunni í ár, sem aldrei hefur verið glæsilegri.
Sýningarverðlaunin eru veitt þeim sýnendum sem skara fram úr í heildarframsetningu, hönnun rýmis og faglegri miðlun til gesta. Að mati dómnefndar tókst Steypustöðinni að skapa eftirminnilega og lifandi upplifun sem skilaði skýrum skilaboðum til allra þeirra þúsunda gesta sem sóttu sýninguna heim.
Í umsögn dómnefndar, sem var einróma í niðurstöðu sinni, segir meðal annars:

„Sýnandi skaraði fram úr með afar faglegri og heildstæðri uppsetningu á sýningarrými. Skýrt flæði, vönduð hönnun og sterk sjónræn framsetning drógu gesti inn og sköpuðu eftirminnilega upplifun. Fræðsla var til fyrirmyndar og sett fram á mannamáli, þrátt fyrir að um væri að ræða efni sem er flókið í eðli sínu.“

Verk og vit dómnefnd 2026
Dómnefndin tók jafnframt fram að starfsfólk Steypustöðvarinnar hefði verið einstaklega sýnilegt og samstillt í merktum klæðnaði, auk þess sem vel hefði verið hugað að eftirfylgni við gesti til að halda samtalinu áfram eftir sýninguna.

Metnaður sem skilar sér
Elsa Giljan Kristjánsdóttir, sýningarstjóri Verk og Vit, segir metnað sýnenda fara vaxandi og að yfirbragð sýningarinnar verði sífellt alþjóðlegra. Sigur Steypustöðvarinnar í ár, þar sem fyrirtæki eins og Límtré Vírnet og Rafmennt fylgdu fast á eftir, undirstrikar þær framfarir og nýsköpun sem einkenna íslenskan byggingariðnað í dag.

Við hjá Steypustöðinni erum gríðarlega stolt af þessari viðurkenningu. Þetta er afrakstur mikillar liðsheildar þar sem hátt í 60 starfsmenn komu að skipulagi, framleiðslu eininga, uppsetningu og vaktstöðu á básnum.
Takk fyrir okkur og sjáumst á Verk og Vit 2028!