Sprungur í nýlagðri steypu
Steypa getur verið viðkvæm fyrir sprungumyndun á fyrstu klukkustundunum eftir niðurlögn ef að aðstæður eru þannig að hún þornar of hratt. Veðuraðstæður á verkstað geta valdið því að uppgufun verður of mikil af yfirborði steypunnar sem leiðir til togspennu í yfirborði og aukinni hættu á sprungumyndun. Til að koma í veg fyrir sprungumyndun er mælt með því að steypa eftir veðri og notast m.a. við yfirbreiðslur eða rýrnunarvara þegar þörf krefur.
7 ráð fyrir steypu í köldu veðri
Rétt aðhlynning á ferskri steypu í köldum veðrum tryggir styrk og endingartíma steypunnar til muna.
Eitt af þessum atriðum er að leyfa steypunni ekki að frjósa á fyrstu stigum hörðnunar. Steypusérfræðingar Steypustöðvarinnar fara hér yfir hvernig best er að tryggja eðlilega hörðnun (setting) steypu í köldu veðri.