Landslagsráðgjöf Steypustöðvarinnar
Lorem ipsum dolor sit
Lorem ipsum dolor sit
Lorem ipsum dolor sit
Fyrir hverja er landslagsráðgjöfin?
Fyrir þá sem vilja teikna innkeyrslu eða garðinn með aðstoð fagmanns. Hér er um að ræða svæði við húsið sem er að hámarki 200fm að stærð. Ráðgjöfin einskorðast við hellur, hleðsluveggi og aðrar vörur Steypustöðvarinnar.
Um landslagsarkitektinn
Upplýsingar
Ráðgjöfin kostar kr. 22.900
Innifalið í því er 45 mín ráðgjöf ásamt frágangi og úrvinnslu gagna sem verða til í tímanum. Þar má telja þrívíðar útlitsteikningar, málsett grunnmynd ásamt magntölum, efnislista og verðtilboði.
Kostnaður við ráðgjöfina gengur upp í efniskaup á hellum og öðrum frá Steypustöðinni.
Ráðgjöfin er 45 mínútur og fer fram á söluskrifstofu Steypustöðvarinnar að Malarhöfða 10.
Á meðan samtalið fer fram vinnur Björn þrívíða mynd af svæðinu þar sem skipulagið er skoðað og hellur og hleðslur eru mátaðar inn á svæðið. Eftir ráðgjöfina er teikningunni stillt upp með málsetningum og þrívíðum sjónarhornum og sett saman í nokkra síðna PDF skjal. Skjalið er svo sent viðskiptavini ásamt efnislista með magntölum innan 7 virkra daga.
Þú bókar tíma hér að neðan í gegnum noona eða hringir í síma 4 400 400.
Þessi gögn þurfa að koma fram í tölvupósti til okkar á gardurinn@steypustodin.is
– Kennitala
– Símanúmer
– Heimilisfang/verkstaður
– 4-5 ljósmyndir af svæðinu
Ráðgjöfin fer fram á föstudögum milli 09:00-15:00
Gott er að senda að lágmarki 4-5 ljósmyndir af svæðinu og passa að allt svæðið sé myndað ásamt húsinu. Því meira því betra, því allt hjálpar.
Björn sækir húsateikningar hjá viðkomandi sveitarfélagi en mörg þeirra eru einnig með loftmyndir sem hægt er að skoða í ráðgjöfinni. Ef sveitarfélagið er ekki með sín gögn á netinu eða ef húsið er í hönnun er gert ráð fyrir að viðskiptavinurinn sendi teikningar með ljósmyndunum. Ef verið er að vinna í þegar frágengnu svæði þarf einnig að senda helstu mál af því sem á að standa áfram.
Góður undirbúningur er að setja saman lista yfir þær óskir sem liggja fyrir t.d. fjöldi bílastæða, hleðsluveggir, hellutegundir, sorpskýli og annað sem skiptir máli.
Góð ráð: Skoða Pinterest, skoða hellutegundir og umhverfismyndir á steypustodin.is. Hönnuðurinn okkar hann Björn er einnig með heimasíðuna www.urbanbeat.is ásamt Facebook og Instagram síðu þar sem finna má aragrúa hugmynda.