Persónuverndaryfirlýsing Steypustöðvarinnar
Með persónuverndaryfirlýsingu þessari er greint frá því hvernig Steypustöðin ehf., kt. 660707-0420, Malarhöfða 10, 110 Reykjavík (hér eftir „Steypustöðin“, „fyrirtækið“ eða „við“ ), standa að vinnslu, s.s. söfnun, skráningu, vistun og miðlun persónugreinanlegra upplýsinga um einstaklinga (hér eftir einnig „þú“). Yfirlýsingin fjallar einkum um vinnslu persónuupplýsinga þegar einstaklingar:
- hafa samband við fyrirtækið, hvort sem það er í gegnum tölvupóst, síma eða samfélagsmiðla
- heimsækja heimasíðu okkar, steypustodin.is
- eru í viðskiptum við okkur eða á viðskiptamannalista okkar
Steypustöðin vinnur persónuupplýsingar í samræmi við gildandi persónuverndarlöggjöf á Íslandi á hverjum tíma, sem og viðkomandi gerðir samningsins um Evrópska efnahagssvæðið.
Persónuvernd er Steypustöðinni mikilvæg
Öflug persónuvernd er Steypustöðinni kappsmál og leggjum við mikla áherslu á að virða réttindi einstaklinga og að öll meðferð persónuupplýsinga sé ávallt í samræmi við gildandi regluverk á hverjum tíma, sem og í samræmi við bestu venjur.
Hvaða persónuupplýsingum safnar Steypustöðin um þig og hver er tilgangurinn með söfnuninni?
Steypustöðin leggur áherslu á að vinna einungis þær persónuupplýsingar sem nauðsynlegar eru í samræmi við þann tilgang sem liggur að baki söfnun upplýsinganna. Fyrirtækið vinnur persónuupplýsingar ekki frekar í óskyldum tilgangi nema einstaklingi sé tilkynnt um slíkt og þá heimild sem vinnslan byggist á.
Steypustöðin safnar, eins og við á hverju sinni, einkum eftirfarandi persónuupplýsingum:
- – auðkennis- og samskiptaupplýsingum, s.s. nafni og kennitölu, heimilisfangi, tölvupóstfangi, símanúmeri
- – fjármálaupplýsingum, s.s. korta/greiðsluupplýsingum
- – tæknilegum upplýsingum, s.s. IP tölu
- – stafrænum fótsporum, s.s. nethegðun
- – upplýsingum í tengslum við val á markaðssetningu
- – samtölum í gegnum samfélagsmiðla
- – myndefni úr upptökum eftirlitsmyndavéla
Steypustöðin safnar ekki upplýsingum sem gætu flokkast sem viðkvæmar persónuupplýsingar.
Steypustöðin vinnur persónuupplýsingar einkum í þeim tilgangi að:
- – stunda markaðssetningu og framkvæma greiningar
- – sinna eigna- og öryggisvörslu, t.a.m. í gegnum eftirlitsmyndavélar
- – bregðast við fyrirspurnum, kvörtunum og hrósi frá einstaklingum
- – uppfylla lagaskyldu sem hvílir á fyrirtækinu
Þegar þú notar heimasíðuna okkar www.Steypustodin.is söfnum við upplýsingum um notkun þína, þ.e. IP tölu, tegund eða útgáfu vafra sem þú notar, tímasetningu og tímalengd heimsóknar og hvaða undirsíður þú heimsækir innan heimasíðu Steypustöðvarinnar. Hér má finna nánari upplýsingar um notkun okkar á vafraökum (e. cookies)
Lagalegur grundvöllur fyrir vinnslu
Steypustöðin safnar og vinnur persónuupplýsingar byggt á eftirfarandi heimildum:
- – Til að uppfylla samningsskyldu.
- – Til að uppfylla lagaskyldu. Þessi heimild á einkum við í tengslum við gögn sem falla undir bókhaldslög.
- – Til að vernda lögmæta hagsmuni félagsins. Þessi heimild á einkum við í tengslum við myndavélaeftirlit á svæði fyrirtækisins í eigna- og öryggisvörsluskyni, ásamt innheimtu vanskilakrafna.
Hversu lengi geymum við persónuupplýsingar um þig?
Steypustöðin geymir persónuupplýsingar í þann tíma sem nauðsynlegur er til að uppfylla tilgang vinnslunnar eins og greint er frá honum hér að ofan. Sem dæmi er þeim upplýsingum sem verða til í gegnum myndavélaeftirlit eytt eftir 60 daga. Þær upplýsingar sem teljast til bókhaldsgagna geymdar í sjö ár samkvæmt bókhaldslögum nr. 145/1994.
Frá hverjum safnar Steypustöðin þínum persónuupplýsingum?
Við söfnum persónuupplýsingum frá þér, og í vissum tilvikum frá utanaðkomandi aðilum á borð við Credit Info.
Hvenær miðlar Steypustöðin persónuupplýsingum þínum til þriðju aðila og af hverju?
Steypustöðin selur ekki undir neinum kringumstæðum persónuupplýsingar um þig. Fyrirtækið miðlar einungis persónuupplýsingum til þriðju aðila þar sem sem slíkt er skylt samkvæmt lögum eða ef um er að ræða þjónustuveitanda, umboðsmann eða verktaka sem ráðinn er af hálfu Steypustöðvarinnar til þess að vinna fyrirfram ákveðna vinnu. Sem dæmi má nefna aðila sem sjá um:
- – að framkvæma greiningar
- – upplýsingatækni- og fjarskiptaþjónustu
Teljist aðili sem Steypustöðin miðlar persónuupplýsingum til vera vinnsluaðili gerir fyrirtækið vinnslusamning við viðkomandi aðila. Vinnslusamningar kveða meðal annars á um skyldu vinnsluaðila til að halda persónuupplýsingum öruggum og að nota þær ekki í öðrum tilgangi. Steypustöðin deilir einnig persónuupplýsingum með þriðju aðilum þegar slíkt er nauðsynlegt til að vernda brýna hagsmuni fyrirtækisins, eins og við innheimtu á vanskilakröfu.
Persónuverndaryfirlýsing Steypustöðvarinnar nær ekki til upplýsinga eða vinnslu þriðju aðila en við höfum enga stjórn á né berum ábyrgð á notkun, birtingu eða öðrum verkum þeirra. Við hvetjum þig því til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þriðju aðila, þ. á m. vefhýsingaraðilum þeirra síðna sem geta vísað á okkar, hugbúnaðarfyrirtækja á borð við Facebook, Google og Microsoft ásamt þeirri greiðsluþjónustu sem þú kýst að nota.
Öryggi persónuupplýsinga og tilkynning um öryggisbrot
Öryggi í vinnslu persónuupplýsinga er Steypustöðinni mikilvægt og höfum við gripið til viðeigandi tæknilegra og skipulagslegra öryggisráðstafana til að tryggja vernd persónuupplýsinga þinna í takt við stefnu okkar um öryggi. Komi upp öryggisbrot er varðar þínar persónuupplýsingar, og teljist slíkt brot hafa í för með sér mikla áhættu fyrir frelsi og réttindi þín, munum við tilkynna þér um það án ótilhlýðilegrar tafar. Í þessum skilningi telst öryggisbrot atburður sem leiðir til þess að persónuupplýsingar þínar glatist eða eyðist, þær breytist, séu birtar eða óviðkomandi fái aðgang að þeim í leyfisleysi. Hér viljum við þó vekja athygli á því að þær persónuupplýsingar sem þú deilir með okkur á samfélagsmiðlum, t.d. Facebook síðu Steypustöðvarinnar teljast opinberar upplýsingar og ekki á forræði fyrirtækisins þar sem Steypustöðin hefur enga stjórn á slíkum upplýsingum né bera ábyrgð á notkun eða birtingu þeirra. Standi vilji þinn ekki til þess að deila þeim upplýsingum með öðrum notendum eða veitanda samfélagsmiðlaþjónustunnar skaltu ekki deila upplýsingum á samfélagsmiðlum okkar. Við hvetjum þig einnig til að kynna þér persónuverndaryfirlýsingar þessara aðila, Facebook, Google og Microsoft. Athugaðu að þegar þú ferð inn á Facebook síðu okkar, er mögulegt að Facebook komi fyrir vafrakökum í tæki þínu í greiningarskyni.
Réttindi þín
Með fyrirvara um þau skilyrði sem nánar er fjallað um í gildandi löggjöf um persónuvernd, þá átt þú rétt á að:
- – fá upplýsingar um hvaða persónuupplýsingar fyrirtækið hefur skráð um þig og uppruna þeirra, sem og upplýsingar um hvernig unnið er með persónuupplýsingar um þig,
- – fá aðgang að þeim persónuupplýsingum sem eru unnar um þig, eða óska eftir að þær séu sendar til þriðja aðila,
- – persónuupplýsingar þínar séu uppfærðar og leiðréttar ef tilefni er til,
- – Steypustöðin eyði persónuupplýsingum þínum ef ekki er málefnaleg eða lagaleg skylda til að varðveita þær,
- – koma á framfæri andmælum ef þú vilt takmarka eða koma í veg fyrir að persónuupplýsingar þínar séu unnar,
- – upplýsingar um það hvort fram fari sjálfvirk ákvarðanataka, á hvaða rökum slík ákvarðanataka er byggð og endurskoðun á sjálfvirkri ákvarðanatöku,
- – afturkalla samþykki þitt um að Steypustöðin megi safna, skrá, vinna eða geyma persónuupplýsingar þínar, þegar vinnsla byggist á þeirri heimild.
Viljir þú nýta rétt þinn getur þú sent skriflega fyrirspurn á sVið munum staðfesta móttöku á beiðninni og að jafnaði bregðast við beiðnum innan mánaðar frá móttöku. Verði ekki unnt að bregðast við innan mánaðar munum við tilkynna þér um töf á afgreiðslu innan mánaðar. Ekki er innheimt gjald þegar einstaklingar nýta rétt sinn í samræmi við ofangreint, nema í þeim tilvikum sem beiðni telst óhófleg eða augljóslega tilefnislaus.
Þú hefur einnig rétt til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd sjáir þú ástæðu til þess. Upplýsingar um Persónuvernd má finna á heimasíðu þeirra, www.personuvernd.is.
Frekari upplýsingar
Ef þú vilt fá frekari upplýsingar um málefni sem snúa að þínum persónuupplýsingum þá bendum við þér á að hafa samband við skrifstofu Steypustöðvarinnar.
Steypustöðin ehf.
Malarhöfða 10
110 Reykjavík
440-0400
steypustodin@steypustodin.is
Yfirferð og endurskoðun persónuverndaryfirlýsingar Steypustöðvarinnar
Persónuverndaryfirlýsingin er endurskoðuð reglulega og uppfærð ef tilefni er til. Síðast var stefnan uppfærð þann 3.1.2022.