Jafnréttisáætlun Steypustöðvarinnar
2025 – 2027
Steypustöðin leggur áherslu á markvissa vinnu við að jafna stöðu kynjanna innan vinnustaðarins. Í áætluninni eru sett fram markmið og aðgerðaráætlanir til að tryggja jafnrétti og jöfn tækifæri starfsfólks.
Áætlunin gildir fyrir allt starfsfólk Steypustöðvarinnar og er sett fram samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna nr. 150/2020, auk annarra laga, krafa og kjarasamninga sem snúa að jafnrétti.
Markmið
Steypustöðin leggur áherslu á jafnan rétt kynjanna til launa, stöðuveitinga og þátttöku í nefndum og störfum meðal allra starfsstétta Steypustöðvarinnar. Starfsfólk skal enn fremur njóta sömu tækifæra, réttinda og starfsaðstæðna óháð kynþætti, þjóðerni, trúarbrögðum eða öðrum þáttum. Steypustöðin vinnur að því að viðhalda jafnlaunavottun skv. 7 gr. laga nr. 15/2020.
Eftirfarandi eru markmið Steypustöðvarinnar:
- 1. Starfsfólk skal njóta sömu launa og kjara fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf, óháð kyni
- 2. Starf sem laust er til umsóknar skal standa öllum opið, óháð kyni
- 3. Lögð er áhersla á að starfsþjálfun og endurmenntun standi öllu starfsfólki til boða, óháð kyni
- 4. Steypustöðin virðir fjölskylduábyrgð samstarfsfólks síns og vinnur markvisst að því að starfsmenn geti aðlagað störf sín og fjölskylduábyrgð á árangursríkan hátt
- 5. Starfsfólki skal auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna
- 6. Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni er ekki liðin á vinnustaðnum
Launajafnrétti
Í 6. grein laga nr. 150/2020 segir: „Konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá skulu greidd jöfn laun og njóta sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf.
Með jöfnum launum er átt við að laun skulu ákveðin á sama hátt fyrir fólk óháð kyni. Skulu þau viðmið sem lögð eru til grundvallar launaákvörðun ekki fela í sér kynja-mismunun. Starfsfólki skal ávallt heimilt að skýra frá launakjörum sínum ef það kýs að gera svo“.
Markmið:
Starfsfólk skal njóta sömu launa og kjara fyrir sambærileg og jafn verðmæt störf, óháð kyni.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Störf eru flokkuð eftir verðmæti
Gerð launagreining ekki sjaldnar en árlega. Aðgerðarlisti settur upp eftir launagreiningu og óútskýrður mismunur leiðréttur. Viðhalda jafnlaunakerfinu þannig að Steypustöðin uppfylli kröfur jafnlaunavottunnar. |
Febrúar ár hvert
Apríl ár hvert |
Fylgni milli starfaflokkunar og þeirra launa sem greidd eru (R2) verði ekki lægri en 90%.
Óútskýrður kynbundinn launamunur verði enginn og heildarfrávik ekki meiri en 5% Niðurstöður úttektar BSI |
Frkvstj. rekstrar-og mannauðssviðs |
Laus störf
Í 12. grein laga nr. 150/2020 segir: „Starf sem laust er til umsóknar skal standa opið jafnt konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá, sbr. þó 2. mgr. 16. gr.“ Í þeirri grein segir þó teljast sértækar aðgerðir ekki ganga gegn lögum þessum. Sama á við ef gild rök mæla með því að ráða til starfa einstakling af ákveðnu kyni vegna hlutlægra þátta er tengjast starfinu.
Markmið:
Starf sem laust er til umsóknar skal standa öllum opið, óháð kyni
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Þegar ráðið er í störf sé horft til þess kyns sem hallar á ef um jafn hæfa einstaklinga er að ræða og brugðist við ef tilefni er til. | Febrúar ár hvert | Farið yfir heildarráðningar í samræmi við umsóknir | Frkvstj. rekstrar-og mannauðssviðs |
Starfsþjálfun og endurmenntun
Í 12. grein laga nr. 150/2020 segir: „ Atvinnurekendur skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að konur, karlar og fólk með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá njóti sömu möguleika til endurmenntunar, símenntunar og starfsþjálfunar og til að sækja námskeið sem haldin eru til að auka hæfni í starfi eða til undirbúnings fyrir önnur störf.“
Markmið:
Lögð er áhersla á að starfsþjálfun og endurmenntun standi öllu starfsfólki til boða, óháð kyni.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Fylgst verður með að ekki halli á hópa þegar kemur að endurmenntun og námskeiðum. Tekið saman þátttaka og ef hallar á einhvern hóp verður sá hópur hvattur sérstaklega til þátttöku. | Febrúar ár hvert | Hlutfallsleg bæting ef hallar á einhvern hóp starfsfólks | Frkvstj. rekstrar-og mannauðssviðs |
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Í 13. grein laga nr. 150/2020 segir: „Atvinnurekendur skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gera starfsfólki kleift að samræma starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu, óháð kyni. Ráðstafanir þær skulu m.a. miða að því að auka sveigjanleika í skipulagningu á vinnu og vinnutíma þannig að bæði sé tekið tillit til fjölskylduaðstæðna starfsfólks og þarfa atvinnulífs, þ.m.t. að starfsfólki sé auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna.“
Markmið:
Lögð er áhersla á að starfsfólk geti samræmt vinnutíma og fjölskyldulíf eins og kostur er.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Vinnuskýrslur liggi frammi með réttum fyrirvara vegna áherslu á að samhæfa fjölskyldulíf og vinnutíma. | Febrúar ár hvert | Viðhorfskönnun gerð um upplifun starfsfólks sem hafa sveigjanlegan vinnutíma. | Frkvstj. rekstrar-og mannauðssviðs |
Markmið:
Starfsfólki skal auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Kynna fyrir starfsfólki og sérstaklega verðandi foreldrum, réttindi og skyldur sem það hefur gagnvart vinnustaðnum . Ef um mismun er að ræða eru foreldrar hvattir til að nýta réttindi sín.
Foreldrum kynntur veikindaréttur barna |
Febrúar ár hvert | Viðhorfskönnun gerð um upplifun starfsfólks
Kannað hvort mismunur sé á kynjum er varðar töku orlofs eða nýtingu veikindaréttar |
Frkvstj. rekstrar-og mannauðssviðs / yfirmenn deilda |
Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni
Í 14. grein laga nr. 150/2020 segir: „Atvinnurekendur og yfirmenn stofnana, félagasamtaka og íþrótta- og æskulýðsfélaga skulu gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar og notendur þjónustu verði fyrir kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað, í stofnun, félagsstarfi eða skólum“.
Markmið:
Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni eða kynferðisleg áreitni er ekki liðin á vinnustaðnum.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Fræðsla um einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferislega áreitni fyrir starfsfólk ásamt því að koma á vinnureglum um hvernig skuli bregðast við ef slíkt kemur upp. Sérstök yfirferð yfir forvarnarstefnu Steypustöðvarinnar
Sérstök yfirferð yfir forvarnarstefnu Steypustöðvarinnar |
Febrúar ár hvert
Yfirferð á forvarnarstefnu fyrsta ársfjórðung ár hvert |
Staðfesting á að fræðsla hefur farið fram | Frkvstj. rekstrar-og mannauðssviðs / yfirmenn deilda |
Ágreiningsmál
Ef upp kemur ágreiningur vegna jafnréttismála þá er hægt að vísa honum til forstjóra, framkvæmdarstjóra rekstrar- og mannauðssviðs, mannauðsfulltrúa eða næsta yfirmanns starfsmanns.
Endurskoðun jafnréttisáætlunar
Unnið verður að stöðugum umbótum á stefnunni, henni fylgt eftir og brugðist við ef ástæða er til. Endurskoðun stefnunnar fer reglulega fram, ekki sjaldnar en einu sinni á ári í tengslum við yfirferð á jafnlaunakerfinu er tengist jafnlaunavottun. Mikilvægt er að markmið og aðgerðaráætlanir séu í samræmi við daglegt starf í Steypustöðinni.
Jafnréttisáætlun er kynnt starfsfólki eftir samþykkt Jafnréttisstofu og samhliða nýráðningum.
Jafnréttisáætlun Steypustöðvarinnar gildir til lok árs 2027.
Samþykkt af stjórnendum Steypustöðvarinnar 19.03.2025
Samþykkt af Jafnréttisstofu: 18.03.2025