Jafnréttisáætlun Steypustöðvarinnar
2022 – 2024
Stefna Steypustöðvarinnar í jafnréttismálum er að vinna markvisst að því að jafna stöðu kynjanna innan vinnustaðarins. Í áætluninni eru sett upp markmið og aðgerðaráætlanir til að ná þessum markmiðum.
Jafnréttisáætlunin gildir fyrir allt starfsfólk Steypustöðvarinnar.
Jafnréttisáætlunin er sett fram samkvæmt lögum um jafnan rétt og jafna stöðu kynjanna nr.150/2020, og annarra laga og reglna er snúa að jafnrétti.
Markmið
Steypustöðin leggur áherslu á jafnan rétt kynjanna til launa og stöðuveitinga meðal allra starfsstétta Steypustöðvarinnar. Starfsfólk Steypustöðvarinnar skal ennfremur njóta sömu tækifæra, réttinda og starfsaðstæðna óháð kynþætti, þjóðerni, trúarbrögðum eða öðrum þáttum.
Eftirfarandi eru markmið Steypustöðvarinnar:
- 1. Starfsfólk skal njóta sömu launa og kjara fyrir sambærileg og jafnverðmæt störf, óháð kyni
- 2. Starf sem laust er til umsóknar skal standa öllum opið, óháð kyni
- 3. Lögð er áhersla á að starfsþjálfun og endurmenntun standi öllu starfsfólki til boða, óháð kyni
- 4. Steypustöðin virðir fjölskylduábyrgð samstarfsfólks síns og vinnur markvisst að því að starfsmenn geti aðlagað störf sín og fjölskylduábyrgð á árangursríkan hátt
- 5. Starfsfólki skal auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna
- 6. Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni er ekki liðin á vinnustaðnum
Launajafnrétti
Í 6. grein laga nr. 150/2020 segir: „Atvinnurekendum er óheimilt að mismuna konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá í launum og öðrum kjörum á grundvelli kyns.
Ef leiddar eru líkur að því að kona, karl og fólk með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá njóti mismunandi launakjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf skal atvinnurekandi sýna fram á, ef um launamun er að ræða, að munurinn skýrist af öðrum þáttum en kyni“.
Markmið:
Starfsfólk skal njóta sömu launa og kjara fyrir sambærileg og jafn verðmæt störf, óháð kyni.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Störf eru flokkuð eftir verðmæti
Gerð launagreining ekki sjaldnar en árlega. Aðgerðarlisti settur upp eftir launagreiningu og óútskýrður mismunur leiðréttur. Viðhalda jafnlaunakerfinu þannig að Steypustöðin uppfylli kröfur jafnlaunavottunnar. |
Febrúar ár hvert
Apríl ár hvert |
Fylgni milli starfaflokkunar og þeirra launa sem greidd eru (R2) verði ekki lægri en 90%.
Óútskýrður kynbundinn launamunur verði enginn og heildarfrávik ekki meiri en 5% Niðurstöður úttektar BSI |
Mannauðsstjóri |
Laus störf
Í 12. grein laga nr. 150/2020 segir: „Starf sem laust er til umsóknar skal standa opið jafnt konum, körlum og fólki með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá, sbr. þó 2. mgr. 16. gr. Í þeirri grein segir þó teljast sértækar aðgerðir ekki ganga gegn lögum þessum. Sama á við ef gild rök mæla með því að ráða til starfa einstakling af ákveðnu kyni vegna hlutlægra þátta er tengjast starfinu„
Markmið:
Starf sem laust er til umsóknar skal standa öllum opið, óháð kyni
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Þegar ráðið er í störf sé horft til þess kyns sem hallar á ef um jafn hæfa einstaklinga er að ræða | Febrúar ár hvert | Farið yfir heildarráðningar í samræmi við umsóknir | Mannauðsstjóri |
Starfsþjálfun og endurmenntun
Í 12. grein laga nr. 150/2020 segir: „ Atvinnurekendur skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að tryggja að konur, karlar og fólk með hlutlausa skráningu kyns í þjóðskrá njóti sömu möguleika til endurmenntunar, símenntunar og starfsþjálfunar og til að sækja námskeið sem haldin eru til að auka hæfni í starfi eða til undirbúnings fyrir önnur störf.“
Markmið:
Lögð er áhersla á að starfsþjálfun og endurmenntun standi öllu starfsfólki til boða, óháð kyni.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Fylgst verður með að ekki halli á hópa þegar kemur að endurmenntun og námskeiðum. Tekið saman þátttaka og ef hallar á einhvern hóp verður sá hópur hvattur sérstaklega til þátttöku. | Febrúar ár hvert | Hlutfallsleg bæting ef hallar á einhvern hóp starfsfólks | Mannauðsstjóri |
Samræming fjölskyldu- og atvinnulífs
Í 13. grein laga nr. 150/2020 segir: „Atvinnurekendur skulu gera nauðsynlegar ráðstafanir til að gera starfsfólki kleift að samræma starfsskyldur sínar og ábyrgð gagnvart fjölskyldu, óháð kyni. Ráðstafanir þær skulu m.a. miða að því að auka sveigjanleika í skipulagningu á vinnu og vinnutíma þannig að bæði sé tekið tillit til fjölskylduaðstæðna starfsfólks og þarfa atvinnulífs, þ.m.t. að starfsfólki sé auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna.“
Markmið:
Lögð er áhersla á að starfsfólk geti samræmt vinnutíma og fjölskyldulíf eins og kostur er.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Að koma á kerfi sveigjanlegs og fyrirsjáanlegs vinnutíma, þar sem því verður við komið, til að stuðla að samhæfingu fjölskyldu- og atvinnulífs. | Febrúar ár hvert | Viðhorfskönnun gerð um upplifun starfsfólks sem hafa sveigjanlegan vinnutíma. | Mannauðsstjóri |
Markmið:
Starfsfólki skal auðveldað að koma aftur til starfa eftir fæðingar- og foreldraorlof eða leyfi úr vinnu vegna brýnna fjölskylduaðstæðna.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Kynna fyrir starfsfólki og sérstaklega verðandi foreldrum, réttindi og skyldur sem það hefur gagnvart vinnustaðnum | Febrúar ár hvert | Viðhorfskönnun gerð um upplifun starfsfólks | Mannauðsstjóri / yfirmenn deilda |
Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni og kynferðisleg áreitni
Í 14. grein laga nr. 150/2020 segir: „Atvinnurekendur og yfirmenn stofnana, félagasamtaka og íþrótta- og æskulýðsfélaga skulu gera sérstakar ráðstafanir til að koma í veg fyrir að starfsfólk, nemar og notendur þjónustu verði fyrir kynbundnu ofbeldi, kynbundinni áreitni eða kynferðislegri áreitni á vinnustað, í stofnun, félagsstarfi eða skólum“.
Markmið:
Einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundin áreitni eða kynferðisleg áreitni er ekki liðin á vinnustaðnum.
Aðgerð | Verklok | Árangursm. | Ábyrgð |
Fræðsla um einelti, kynbundið ofbeldi, kynbundna áreitni og kynferislega áreitni fyrir starfsfólk ásamt því að koma á vinnureglum um hvernig skuli bregðast við ef slíkt kemur upp. Sérstök yfirferð yfir forvarnarstefnu Steypustöðvarinnar | Febrúar ár hvert | Staðfesting á að fræðsla hefur farið fram | Mannauðsstjóri / yfirmenn deilda |
Ágreiningsmál
Ef upp kemur ágreiningur vegna jafnréttismála þá er hægt að vísa honum til forstjóra, mannauðsstjóra eða næsta yfirmanns starfsmanns.
Endurskoðun jafnréttisáætlunar 2024
Unnið verður að stöðugum umbótum á stefnunni, henni fylgt eftir og brugðist við ef ástæða er til. Endurskoðun stefnunnar fer reglulega fram, ekki sjaldnar en einu sinni á ári í tengslum við yfirferð á jafnlaunakerfinu er tengist jafnlaunavottun. Mikilvægt er að markmið og aðgerðaráætlanir séu í samræmi við daglegt starf í Steypustöðinni. Jafnréttisáætlun er kynnt starfsfólki eftir samþykkt Jafnréttisstofu og samhliða nýráðningum.
Jafnréttisáætlun Steypustöðvarinnar gildir til lok árs 2024.
Samþykkt af stjórnendum Steypustöðvarinnar 04.04.2022
Samþykkt af Jafnréttisstofu