Inga Lóa nýr mannauðsstjóri Steypustöðvarinnar

Inga Lóa Karvelsdóttir, mannauðsstjóri Steypustöðvarinnar
Inga Lóa Karvelsdóttir hefur tekið við sem mannauðsstjóri Steypustöðvarinnar. Hún kemur úr röðum fyrirtækisins, en hún hóf störf árið 2022 sem mannauðsfulltrúi í einingaframleiðslu Steypustöðvarinnar í Borgarnesi.

„Tilfinningin er góð og ég er fyrst og fremst mjög spennt að takast á við stærra verkefni,“ segir Inga Lóa. „Þessi fjögur ár hafa verið gríðarlega lærdómsrík og skemmtileg. Ég hlakka til að byggja áfram á því sem við höfum nú þegar byggt upp.“

Inga Lóa er með BA í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Leiðin í mannauðsmálin var þó ekki fyrir fram ákveðin.

„Þetta var fyrst og fremst forvitni. Ég ætlaði upphaflega í klíníska sálfræði og afbrotafræði en tók eiginlega U-beygju á síðustu stundu og sótti um master í mannauðsstjórnun. Ég sé svo sannarlega ekki eftir því,“ segir hún og bætir við að sálfræðingurinn í henni nýtist ágætlega í starfi.

Í nýja hlutverkinu eykst ábyrgðin og yfirsýnin nær nú til allra sviða fyrirtækisins. En það sem stendur upp úr er fólkið sjálft.

„Fjölbreytnin er það sem heillar, hvað fyrirtækið og starfsfólkið er fjölbreytt og þekkingarsviðið sem við búum yfir er gríðarlegt. Það er ákaflega gefandi að vinna með svona flottu fólki,“ segir Inga Lóa.

Utan vinnu snúast dagarnir um gæðastundir með fjölskyldunni og að rækta líkama og sál, og þegar færi gefst liggur leiðin út fyrir landsteinana.

„Það er ánægjulegt að sjá fólk vaxa innan fyrirtækisins og taka að sér stærri hlutverk. Inga Lóa hefur vaxið hratt hjá okkur og þekkir Steypustöðina og fólkið okkar vel,“ segir Björn Ingi Victorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar.